Saga fimleikadeildar Ármanns
Fimleikdeild Ármanns á sér glæsta sögu. Vonandi verðum við einhvern tímann í stakk búinn til að gera henni verðug skil hér á síðunni. Til að byrja með verðum við að láta nægja smámola og vona að þeir verði byggingarefni í stærri byggingu.
Með því að smella hér færðu Excel-skjal með öllum Íslandsmeisturum í fjölþraut á Íslandsmótum frá árinu 1969 þegar Íslandsmótið í fimleikum var endurreist og til ársins 2006. Af 37 Íslandsmeisturum á þessum tíma (mótið féll niður 1973) átti fimleikadeild Ármanns 18 meistara í karlaflokki og 8 í kvennaflokki.