Frjálsíþróttaveturinn hefst formlega 2. september næstkomandi. Æfingarnar eru eins og áður fjölbreyttar og skemmtilegar og við leyfum okkur að segja undir stjórn úrvals þjálfara. Hér á síðunni má sjá nánar um æfingar og flokka. Sérstaklega er bent á tilraun okkar til að hafa æfingar 5-7 ára (2003-2005) klukkan 15:30. Æfingar samstilltar með frístundastrætó í hverfinu.
Æfingar 8-14 ára hefjast klukkan 16:30.
Nú er um að gera að mæta á fimmtudaginn og kíkja í heimsókn. Það kostar ekkert að prufa.