
Glímufélagið Ármann
Íþróttamiðstöðin Laugaból
Engjavegur 7, 104 Reykjavík
armann@armenningar.is
Sími: 412 7400
Kennitala: 420169-0359
VSK Númer: 22951
Keppendur á MÍ 15-22 ára, sem fram fór á ÍR-vellinum helgina 20.-22. júní, þurftu að eiga við fjölbreytt veðurfar íslenska sumarsins en það hélt ekki Ármenningum frá því að bæta sig og komast á verðlaunapall.
Í flokki 15 ára stúlkna náði Hörn Christensen 2. sæti í sleggjukasti og bætti sig í þeirri grein. Hjá piltunum í 15 ára aldursflokki náði Freyr Ingvarsson 3. sæti í langstökku og þrístökki og bætti sig í báðum greinum. Í sama flokki var Sverrir Þór Hákonarson sem tók 3. sætið í spjótkasti og bætti sig þar.
Í flokki 16-17 ára pilta keppti Arnar Logi Henningsson til verðlauna í 100m (3. sæti) og langstökki (2. sæti). Jörundur Þór Hákonarson varð Íslandsmeistari í 400m grindahlaupi á tímanum 59,71s. sem var bæting hjá honum. Hann náði einnig 3. sæti í 110m grindahlaup og bætti sig þar. Karl Sören Theodórsson varð Íslandsmeistari í stangarstökki með stökk upp á 3,90m og Magnús Elías Harvard náði 2. sæti í sömu grein. Styrmir Tryggvason og Úlfar Jökull Eyjólfsson kepptu líka fyrir Ármann í þessum flokki. Hjá stúlkunum í sama aldursflokki kepptu þær Herdís Arna Úlfarsdóttir og Birna Sól Björnsdóttir fyrir Ármann.
Í flokki 18-19 ára stúlkna tók Anna Karen Jafetsdóttir 3. sætið í sleggjukasti og bætti sig í þeirri grein. Hjá piltunum í sama aldursflokki náði Magnús Atlason 2. sæti í stangarstökki og Þorsteinn Pétursson varð Íslandsmeistari í kringlukasti þegar hann kastaði 41,14m.
Anthony Vilhjálmur Vilhjálmsson keppti í flokki 20-22 ára pilta og varð þar Íslandsmeistari í bæði 100m hlaupi (11,35s.) og 200m hlaupi (22,26s.). Hjálmur Þórhallsson keppti líka fyrir Ármann í þessum flokki. Hjá stúlkunum í þessum aldursflokki keppti Birna Ósk Úlfarsdóttir ein í 3000m hlaupi og varð þar með Íslandsmeistari þegar hún hljóp á tímanum 11:26,70. Hún náði einnig 3. sæti í 800m og 1500m hlaupunum.
Íþróttamiðstöðin Laugaból
Engjavegur 7, 104 Reykjavík
armann@armenningar.is
Sími: 412 7400
Kennitala: 420169-0359
VSK Númer: 22951