Glímufélagið Ármann
Íþróttamiðstöðin Laugaból
Engjavegur 7, 104 Reykjavík
armann@armenningar.is
Sími: 412 7400
Kennitala: 420169-0359
VSK Númer: 22951
Þegar barnið hefur verið skráð þá gildir sú skráning allt árið. Þetta á svo við um skráningar í rútuna hér eftir, skráning þarf að berast í síðasta lagi fyrir klukkan 10:00 á mánudeginum áður en ferðir eiga að hefjast. Vinsamlegast óskið ekki eftir undantekningu á þessari reglu. Þessi vinnuregla hefur verið tekin upp með öryggi barnanna að leiðarljósi.
Afskráningar í rútuna og breytingar þurfa að berast í tölvupósti til íþróttafulltrúa félaganna, eidur@armenningar.is og trottur@trottur.is
Mjög mikilvægt er að láta starfsfólk frístundaheimilanna vita ef barn sleppir æfingu, þetta er hægt að gera með því að hringja eða senda tölvupóst á frístundaheimilið. Ef um stuttan fyrirvara er að ræða, hringið þá frekar. Athugið: EKKI er nóg að senda barnið með þessar upplýsingar.
Athugið að allar breytingar þurfa að berast til íþróttafulltrúa félaganna frá foreldrum varðandi rútuferðir almennt, ef um einstaka forföll er að ræða, þá þarf að tilkynna það til frístundaheimilis. Ef breytingar eru á æfingatíma barna, þau færast á milli hópa eða æfingatími hópsins breytist, þá þarf að tilkynna það í fyrrgreind netföng, það gerist ekki sjálfkrafa.
Ef barn byrjar að æfa nýja íþrótt og fer með íþróttarútunni, er mjög æskilegt að foreldri verði búið að fylgja barninu a.m.k. einu sinni áður, jafnvel oftar hjá yngstu börnunum, áður en farið er með rútunni. Brýnið fyrir börnunum hvert þau eiga að fara í klefa og þ.h.
Að lokum vonumst við eftir áframhaldandi góðu samstarfi og bendum ykkur á að koma með athugasemdir til íþróttafulltrúa félaganna ekki starfsmanna frístundaheimilis.
Skráning fer fram á: www.sportabler.com/shop/armann og www.sportabler.com/shop/trottur.
Afskráningar í rútuna og breytingar þurfa að berast í tölvupósti til íþróttafulltrúa félaganna, eidur@armenningar.is og trottur@trottur.is
Gjaldskrá:
F.h. Ármanns
Eiður Ottó Bjarnason eidur@armenningar.is
F.h. Þróttar
María Edvardóttir trottur@trottur.is
Íþróttamiðstöðin Laugaból
Engjavegur 7, 104 Reykjavík
armann@armenningar.is
Sími: 412 7400
Kennitala: 420169-0359
VSK Númer: 22951